Afhending vöru

Viðskiptavinur getur valið að sækja vörur í Reykjavík. Velji viðskiptavinur að sækja vöruna í vöruhús eða í eina af okkar verslunum fær hann tilkynningu þegar vara er tilbúin til afhendingar á viðeigandi afhendingarstað. Afgreiðsla og afhending pantana tekur alla jafna 1-2 virka daga, með fyrirvara um álag og að allar vörur séu til á lager. Flestar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða daginn eftir.

Velji viðskiptavinur að fá pöntun senda verður pöntunin send með Póstinum heim að dyrum eða á næsta pósthús/(ekki hægt með póstbox) gegn gjaldi sem reiknast áður en gengið er frá pöntun. Pantanir sendar með Póstinum eru alla jafna afhentar til flutningsaðila næsta virka dag.

Af öllum pöntunum dreift af Póstinum gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Póstsins.

Sé vara uppseld eða önnur atriði tefja afgreiðslu pöntunar er haft samband við viðskiptavin eins fljótt og hægt er, með upplýsingum um hvenær pöntun verður afgreidd og með hvaða hætti.

 

Skilaréttur

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun kaupnótu eða staðfestingu á móttöku sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt eða afhent. Að þessum skilyrðum uppfylltum og gegn framvísun kaupnótu er viðskiptavini heimilt að fá inneignarnótu, skipta í aðra vöru eða fá endurgreiðslu séu 14 dagar eða minna liðnir frá kaupdegi eða afhendingu vöru. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta einkenni, eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa allir fylgihlutir og handbækur að fylgja með vöru. Skilaréttur þessi gildir ekki af sérpöntunum eða notuðum vörum.

Þurfi að senda vörur til 3Dplast.is ber viðskiptavini að tilkynna eins fljótt og auðið er að hann ætli að nýta sér skilaréttinn. Viðskiptavinur ber beinan kostnað af því að skila vöru og ber ábyrgð á að koma vörunni til 3Dplast.is. Finna má staðlaðar leiðbeiningar og uppsagnareyðublað á neytendasamningi í viðauka 1 og 2 í reglugerð nr. 435/2016 um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi.

Markmið 3Dplast.is er hins vegar að fullnægja þörfum viðskiptavinarins. Ef viðskiptavinur óskar eftir að skila vöru, óháð fyrirfram ákveðnum tímaramma, er reynt að verða við því.

 

Ábyrgð

Tilkynningar um galla eða skemmdir skal senda á S:774 1771. 3Dplast.is áskilur sér þann rétt að meta hvert tilfelli fyrir sig og ber að bjóða viðgerð, nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu teljist vara gölluð.

Ábyrgðartími á búnaði er almennt 2 ár þegar um neytendakaup er að ræða í samræmi við reglur neytendakaupalaga nr. 48/2003, en vörur sem ætlaður er umtalsvert lengri endingartími en 5 ár geta verið með allt að 5 ára ábyrgð á framleiðslugöllum.  Þegar búnaður er keyptur í atvinnuskyni af lögaðila er ábyrgðartími 1 ár. Ábyrgð fellur niður ef bilun má rekja til illrar eða rangrar meðferðar, sem dæmi breyting á vélbúnaði og "Custom software" uppfærsla notuð í verkefni sem teljast utan tilætlaðrar og eðlilegrar notkunar vörunnar. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á búnaði eða notkunar á rekstrarvöru. 

Komi til ábyrgðarviðgerðar ber 3Dplast.is ekki ábyrgð á skaða á gögnum, stýrikerfi, hugbúnaði, glötuðum hagnaði eða öðrum óvæntum eða afleiddum skaða, sem kann að koma upp við notkun hins selda á ábyrgðartíma. 3Dplast.is áskilur sér rétt á að skipta út vélbúnaði sem bilar á ábyrgðartíma með eins eða sambærilegri vöru ef upp kemur að varahlut sé ekki hægt að fá frá framleiðanda vörunnar.

Viðgerðir vegna ábyrgða skulu fara fram á verkstæði 3Dplast.is eða öðru verkstæði sem 3Dplast.is samþykkir. Flutningskostnaður til og frá verkstæði fellur ekki undir ábyrgð. Ábyrgð á búnaði fellur niður ef viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en verkstæði 3Dplast.is, búnaðurinn hefur þolað ranga meðferð, misnotkun eða orðið fyrir hnjaski eða átt hefur verið við búnaðinn þannig að skemmd hefur hlotist af.

Sölureikningur telst ábyrgðarskírteini og skal framvísa honum til staðfestingar á ábyrgð og gildir ábyrgðin frá kaupdegi.  

 

Persónuupplýsingar

Öll söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga þinna eru unnin í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Til að við getum uppfyllt þá þjónustu sem er í boði þegar verslað er í vefversluninni þá þurfum við að fá upplýsingar um nafn þitt, heimilisfang, netfang og símanúmer. Við vistum engar greiðsluupplýsingar aðrar en hvaða greiðslumiðil var notast við þegar greitt var fyrir pöntunina.

Við deilum ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema til að uppfylla þá þjónustu sem þú hefur valið, t.d. til að uppfylla óskir um heimsendingarþjónustu.

 

 

Greiðsluleiðir

Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumáta:

  • Visa/Mastercard
  • Visa/Mastercard raðgreiðslur
  • Netgíró
  • Millifærslur

Ef upp koma greiðsluvandamál, t.d. ef greitt er með stolnu korti, þá áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntun.

Athugið að ef vara er sótt og greidd með kreditkorti verður korthafi sjálfur að sækja og framvísa skilríkjum. Greitt er á öruggri greiðslusíðu Borgunar, en til að tryggja öryggi korthafa notast Borgun við ítrustu öryggisstaðla og öll gögn eru SSL dulkóðuð. 3Dplast.is fær aldrei upplýsingar um greiðslukortanúmer heldur aðeins þær upplýsingar hvort greiðsla hafi farið í gegn.

 

Úrlausn vafamála

Komi upp ágreiningsmál varðandi þjónustu og skildur 3Dplast.is er viðskiptavinum bent á Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa á vef Neytendastofu

Allar upplýsingar á vefnum eru birtar með fyrirvara um breytingar og/eða villur. Einstaka myndir gætu verið af sambærilegri vöru þegar rétt mynd er ekki fáanleg frá framleiðanda.

Verð á vefnum er birt í íslenskum krónum og er virðisaukaskattur innifalinn í verði. Verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram.

 

Lög og varnarþing


Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

Gluggagægir ehf

621018-0940